Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og bókanir á netfangið: adrenalin(hjá)adrenalin.is
Adrenalingarðurinn hefur fyrir löngu sannað sig sem frábær kostur fyrir starfsmannahópa. Þrautirnar í Adrenalíngarðinum henta einkar vel til að hrista hópinn saman, en ekki síður til að eiga skemmtilegan dag og njóta útivistar í fallegu umhverfi.
Dagskráin:
Þegar hópurinn mætir í Adrenalíngarðinn fá allir afhent klifurbelti og hjálm. Áður en haldið er af stað í þrautirnar eru öryggisatriðin kynnt og þátttakendur fá tækifæri til að æfa sig í sérstakri æfingabraut. Eftir það velur hver og einn þær þrautir sem hæfa.
Adrenalíngarðurinn samanstendur af eftirfarandi þrautum:
Þrautabrautin inniheldur um 50 mismunandi þrautir í 1m, 5m og 10m hæð, ásamt lengstu svifbraut landsins. Prófaðu...þú sér ekki eftir því.
Risarólan er um 12m há og sú hæsta á Íslandi. Við hífum þig upp í þá hæð sem þú vilt og þú togar í spottann...ekki missa af þessu.
Staurinn er 10m há krefjandi áskorun sem gleymist seint. Þú klifrar upp, stendur á toppnum og stekkur fram af...ef þú þorir.
Á staðnum eru sérþjálfaðir leiðbeinendur og eru þeir ávallt til taks ef þarf.
Í hnotskurn:
Verð: Vinsamlegast hafði samband við skrifstofu.
Tímabil: 1. mars - 31 október.
Opnunartími: Eftir samkomulagi.
Tímalengd: 2 - 3 tímar, fer eftir stærð hópsins.
Hópastærð: lágmark 10 og hámark 100.
Útbúnaður: Góðir skór s.s. léttir gönguskór eða íþróttaskór og útvistarfatnaður sem hæfir veðri s.s. hlýjar og vatnsheldar yfirhafnir, buff undir hjálma og fingravettlingar.
Innifalið: Klifurbelti og hjálmur.
Aðstaða: Ekki er rennandi kalt/heitt vatn í garðinum. Athugið að inniaðstaða er mjög lítil. Ion hótel staðsett skammt frá Adrenalíngarðinum.
Staðsetning:
Adrenalíngarðurinn er staðsettur á Nesjavöllum, um einn km. frá Nesjavallavirkjun.
Stysta leiðin í Adrenalíngarðinn er um Nesjavallaleið, ca. 35 mín. akstur:
Akið eftir þjóðvegi 1, Suðurlandsveg frá Reykjavík í átt að Selfossi framhjá Rauðavatni - um 3 km fjarlægð frá Rauðavatni er beygt til vinstri inn á Nesjavallaleið, vegur 435 og ekið sem leið liggur vegin á enda. Þegar komið er niður af Henglinum þá er beygt til Hægri á veg 360 og svo aftur til hægri eftir 1 km inn á afleggjarann inn að Nesjavallavirkjun.
Frá Höfðabakkabrú eru 38 km. á Nesjavelli.
Ármúli 40 - IS-108 Reykjavik
Sími: 414 2910
adrenalin(at)adrenalin.is